Innlent

Bjarni Guðna­son er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Bjarni Guðnason sat á þingi fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna.
Bjarni Guðnason sat á þingi fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Alþingi

Bjarni Guðnason, fyrrverandi alþingmaður og prófessor, er látinn. Hann lést síðastliðinn föstudag, 95 ára að aldri. 

Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í morgun, en Bjarni sat á þingi fyrir Samtök frjálslyndra og vinstrimanna á árunum 1971 til 1974. Hann var landskjörinn þingmaður Reykvíkinga.

Á vef Alþingis segir að Bjarni hafi verið fæddur í Reykjavík 3. september 1928, sonur Guðna Jónssonar prófessos og Jónínu Margrétar Pálsdóttur húsmóður. 

Fram kemur að hann hafi lokið stúdentsprófi frá MR árið 1948 og stundað nám í ensku við Háskólann í Lundúnum á árunum 1948 til 1949. Þá hafi hann lokið meistarapróf í íslenskum fræðum árið 1956 og doktorsprófi árið 1963. 

Á árunum 1963 til 1998 gegndi hann stöðu prófessor í íslenskri bókmenntasögu við Háskóla Íslands og var meðal annars fyrsti formaður Félags háskólakennara, 1969 til 1970.

Bjarni ritaði bækur og greinar um íslenskar fornbókmenntir og samið skáldsögu, en doktorsrit hans var um Skjöldungasögu. Þá gaf hann út Danakonunga sögur með rækilegum formála á vegum Hins íslenska fornritafélags.

Bjarni varð landskjörinn alþingismaður Reykvíkinga árið 1971 og sat á þingi fyrir Samtök frjálslyndra og vinstrimanna , síðar utan flokka, til ársins 1974. Var hann 2. varaforseti neðri deildar þingsins á þeim árum. Síðar átti hann eftir að gegna varaþingmennsku fyrir Alþýðuflokkinn.  

Í grein Morgunblaðsins segir ennfremur frá því að Bjarni hafi verið mikill íþróttamaður á sínum yngri árum og leikið all­an sinn fer­il með Vík­ingi. Hann lék fjóra landsleiki í fótbolta á árunum 1951 til 1954 og sömuleiðis nokkra landsleiki í handbolta. Þá var hann íslenska landsliðinu sem vann Svía á Melavellinum í Reykjavík 29. júní 1951, 4-3.

Bjarni gekk að eiga Önnu Guðrúnu Tryggvadóttur árið 1955 og eignuðust þau fjögur börn, þau Tryggva, Gerði, Auði og Unni. Anna Guðrún lést árið 2020. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×