Lífið

Októberspá Siggu Kling er mætt

Helena Rakel Jóhannesdóttir skrifar
oktober

Stjörnuspá Siggu Kling fyrir október er lent á Vísi. Sigga Kling birtir stjörnuspá fyrir öll stjörnumerkin fyrsta föstudag hvers mánaðar.

Stjörnuspár Siggu Kling hafa notið gríðarlega vinsælda. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir október má sjá hér að neðan.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýti sér orkuna, klappi sér á bakið og elski lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.


Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling: Þú hefur lukkuna með þér

Elsku Vatnsberinn minn, þú skalt skoða þessa Chi orku sem er að safnast í kringum þig og til þín. Í henni er falið svo mikið. Að hlusta á sjóinn, jörðina því hún andar og er að sjálfsögðu hin mesta orka, himininn og hamingjuna sem er svo sannarlega hjá þér, þú ert búin að velta mikið fyrir þér hvað er hamingjan og hvernig næ ég henni.

Októberspá Siggu Kling: Þú þarft að vera ráðandi aflið í næsta kafla

Elsku Bogmaðurinn minn, þó að þú eigir það til að vera svo búinn á því og þreyttur þá ertu ofsalega fljótur að vinna upp orkuna. Það er að breytast hjá þér áhugasvið. Það getur verið tengt vinnu eða áhugamáli og þú ert að bæta við og jafnvel að missa áhuga á öðru á sama tíma.

Októberspá Siggu Kling: Það er í þér mikil gredda

Elsku Sporðdrekinn minn, það er að sjálfsögðu öld vatnsberans samkvæmt öllum útreikningum en ég vil líka skila því til þín að það er líka ár sporðdrekans, næstu 12 mánuði sirka.

Októberspá Siggu Kling: Draumarnir eru að rætast

Elsku Meyjan mín, þú ert í mögnuðum krafti. Sérstaklega gæti verið að síðustu 15 dagar hafi breytt svo mörgu og gefið þér svo margt. Nú er spurning hvernig þú vinnur úr gjöfunum sem eru að koma til þín í hollum.

Októberspá Siggu Kling: Þinn er máturinn og svo kemur dýrðin

Elsku Ljónið mitt, ég segi í stjörnuspánni minni þegar ég er að tala við önnur merki, hreyfðu þig úr stað því þú ert ekki tré. Núna eru skilaboðin til þín elsku ljón, þú skalt hugsa eins og þú sért tré, setja ræturnar niður.

Októberspá Siggu Kling: Þú þarft að nota sköpunarkraftinn

Elsku Tvíburinn minn, það er svo merkilegt við þig að þú ert eins og svamp bolti. Jafnvel þó að maður reyni af öllum kröftum að henda þér niður þá hopparu bara hærra eftir því sem fólk reynir að halda þér niðri. Þú ert sérstaklega þrjóskur í þeim aðstæðum sem að ósanngirni birtist þér.

Októberspá Siggu Kling: Þú lendir alltaf á klaufunum

Elsku Nautið mitt, þetta tímabil er svolítið búið að vera eins og það sé logn og sól og allt friðsælt. En svo á næsta augnabliki rignir eld og brennisteini og akkurat þegar þú bjóst ekki við því.

Októberspá Siggu Kling: Gerðu engar kröfur í ástinni

Elsku fiskarnir mínir, eða fiskurinn minn, þið eruð með tákn sem eru tveir fiskar syndandi saman. Það sýnir ykkur líka að þið hafið andstæða póla og annar póllinn er svartur og hinn er hvítur. 

Októberspá Siggu Kling: Þú átt eftir að eyða um efni fram

Elsku vogin mín, það er svo satt að það er þinn helsti eiginleiki allar þær hugmyndir sem fljóta í kringum höfuð þitt á einum degi. Það er ekki eins og þú hafir um eitthvað tvennt að velja og getir ekki ákveðið þig, það er nefnilega um margt að velja í huga þínum og þess vegna getur þú ekki ákveðið hvað er mikilvægast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×