Lífið

Októberspá Siggu Kling: Þú ert hermaður og hugsar sem slíkur

Sigga Kling skrifar
steingeit

Elsku Steingeitin mín, þegar að allt virðist vera að ganga á afturfótunum þá er það ekki í raun að gera það. Þú ert hermaður og hugsar sem slíkur, hafðu það í huga hvernig þú verð metur þig.

  • Steingeitin er frá 22. desember til 19. janúar.

Hugsaðu hvað þú vilt fá í laun á viku og þegar að þú biður um kauphækkun skaltu fara fram á það sem þú þarft að fá útborgað. Þetta er herkænska og mun virka. Að mörgu leyti hefur þú verið ómissandi í þeirri stöðu sem þú ert í eða varst en gleymdir þá oft að verðmeta þig svo þér fannst þú ekki skipta eins miklu máli og áður. 

Þú munt sýna herkænsku og það er líka mikilvægt að þú gleymir þeim ekki sem að héldu í höndina á þér þegar líf þitt var erfiðara. Þú þarft að skoða að fara eftir þínum eigin meðulum þegar þú ert að segja öðrum hvernig þeir eiga að fara að hlutunum að hjálpa eins og um sálfræði tíma væri að ræða. Þá er gott fyrir þig að kalla spurningu, já svona virkar þetta, já eða skrifa spurningu og setja spurningamerki og þú færð svar.

 Kannski ekki eftir mínutu og kannski ekki daginn eftir en það mun koma til þín. Þú ert tengdur mjög stóru interneti og það er magnað, þú hefur svipaðan kraft og google svo hentu út spurningunni, hreinsaðu hugann, hugsaðu ekki meira um það og svarið kemur. 

Klippa: Októberspá Siggu Kling - Steingeitin

Fólk hlustar betur á þig núna og þú ert með visku móðurinnar sem að sér um allt heimilishaldið sem getur verið erfitt að halda utan um. Því engin sér hvernig hún fer að því öllu sem hún þarf að gera og fara. Þessi heilun og viska gefur þér orðheppni, rólegri og betri talanda og vit til að segja réttan hlut á réttum stað. 

Hlúðu að ástinni og ef að hún er ekki hjá þér þá þarftu að bjóða henni inn, og jafnvel láta hana bara vita að þú elskir hana. Einhverja manneskju sem þú ert með í huga. Hvað gæti gerst? Já eða nei. Það sem gæti gerst skiptir ekki öllu því hvert sem svarið er þá er það rétt.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Kiefer Sutherland, leikari, 21. desember
  • Finn Wolfhard, leikari, 23. desember
  • Edda Andrésdóttir, sjónvarpskona, 28. desember
  • Nicolas Cage, leikari, 7. janúar
  • Marilyn Manson, söngvari, 5. janúar
  • Diane Keaton, leikkona, 5. janúar
  • Aron Már Ólafsson, leikari, 12. janúar
  • Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands, 12. janúar
  • Davíð Oddson, stjórnmálamaður, 17. janúar
  • Michelle Obama, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, 17. janúar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×