Lífið

Októberspá Siggu Kling: Það er í þér mikil gredda

Sigga Kling skrifar
sporddreki

Elsku Sporðdrekinn minn, það er að sjálfsögðu öld vatnsberans samkvæmt öllum útreikningum en ég vil líka skila því til þín að það er líka ár sporðdrekans, næstu 12 mánuði sirka.

  • Sporðdrekinn er frá 24. október til 21. nóvember.

Í hvert skipti sem þér finnst þetta hálffúlt líf þá er bara verið að beina þér á aðra braut og ef það er einhver að hjálpa þér of mikið eins og foreldri, maki eða vinur og þú getur endalaust stólað á það fólk, þá verður ekki sú fæðing á lífi þínu eins og gæti orðið. 

Það er styrkur í hverri einustu æð í líkama þínum og það er margt sem þú gætir einblítt á til að gera. Ekki hafa alla kosti opna heldur geymdu þá og hugsaðu bara þessa setningu ÉG ER sigurvegari því á þessu tímabili verða margir sigurvegarar í sporðdrekanum. 

Klippa: Októberspá Siggu Kling - Sporðdrekinn

Þegar þér finnst lítið til þín koma þá finnst öðrum það líka svo þú þarft að elska hverja einustu frumu af þessum sjö þúsund milljón frumum sem eru að vinna dagsdaglega í þessum líkama þínum. Skreyttu líf þitt með músík og málaðu líka. Hafðu þögn þess á milli til þess að efla þinn sterka heila. 

Það er mikil ástríða og Venus þín pláneta er að vökva garðinn þinn. Það er líka í þér mikil gredda sem er fallegt orð því þú þarft að vera graður í það sem þú vilt fá út úr þessu lífi. 

Þú skalt alveg sleppa því að keppast við aðra heldur skapa þig í þinni einstöku mynd. Það er nefnilega hárrétt að þú skapar þig og þú ert fyrirtæki og ef þú hugsar þetta svona, það þarf góðan grunn, það þarf kraft til að breyta mataræði en að elska bara allt sem þú borðar hvort sem að það er hollt eða óhollt. 

Ef þú gerir það þannig þá verður öll fæða og allt sem þú innbyrðir þér til góðs. Ekki sífellt vera að breyta og byrja á nýjungum til þess að láta þig líta betur út og líða betur.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Bill Gates, stofnandi Microsoft, 28. október
  • Þórólfur Guðnason, 28. október
  • Winona Ryder, leikkona, 29. október
  • Kendall Jenner, raunveruleikastjarna, 3. nóvember
  • Leonardo Dicaprio, leikari, 11. nóvember
  • Whoopi Goldberg, leikkona, 13. nóvember
  • Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, 20. nóvember
  • Björk Guðmundsdóttir, 21 nóvember





Fleiri fréttir

Sjá meira


×