Lífið

Októberspá Siggu Kling: Þú þarft að nota sköpunarkraftinn

Sigga Kling skrifar
tviburi

Elsku Tvíburinn minn, það er svo merkilegt við þig að þú ert eins og svamp bolti. Jafnvel þó að maður reyni af öllum kröftum að henda þér niður þá hopparu bara hærra eftir því sem fólk reynir að halda þér niðri. Þú ert sérstaklega þrjóskur í þeim aðstæðum sem að ósanngirni birtist þér.

  • Tvíburi er frá 21. maí til 21. júní.

Reyndar í mörgu öðru þá lætur þú ekki af stjórn en það er nákvæmlega það sem gerir þig svo spennandi og litríkan, því að það er ekki hægt að reikna út hvað þú gerir næst. 

Þær áhyggjur sem snúa að næstu mánuðum eru óþarfar vegna þess að þegar þú ert settur í þá aðstöðu að glíma við lífið þá finnur þú alltaf einhverja smugu úr aðstæðunum. Í stjörnuspekinni táknar hvert merki líkamspart og tvíburinn táknar hendurnar og þar af leiðandi stjórnar þú sinfóníu hljómsveitinni. 

Það eru skilaboð um að vera sérstaklega natinn við tvíbura börn á þessu augnabliki og hugsa vel um aðstandendur í þessu merki, það margborgar sig. 

Klippa: Októberspá Siggu Kling - Tvíburinn

Það er örlítil spenna í ástinni en ekkert sem skiptir öllu máli. Þú ert undir því tímabili sem þú þarft að nota sköpunarkraftinn þar sem þú þarft að dansa, syngja, elda eða skreyta, sérstaklega ef þú ert í vinnu sem er ekki nákvæmlega hönnuð fyrir þig eða af þér. 

Dæmdu enga manneskju því þú komst ekki hingað til jarðarinnar til að vera dómari. Sýndu miskunn og segðu fátt um annað fólk. Þér verður vel launað af alheims orkunni sem er allt í kringum þig. Talaðu við þá sem hafa yfirgefið jarðvistina, kallaðu á þær orkur sem þig vantar jafnvel þó að þær séu jafnvel lifandi, því þú getur það einnig.

Þegar ég er að gera ljóðin mín þá kalla ég á rithöfunda eins og Stein Steinarr og Davíð Stefánsson og svo framvegis, því þá verður hugurinn minn frjáls til að skrifa eitthvað fallegt sem allavega gleður hjartað og frumurnar mínar. 

Magnaðu þannig upp þann mikla mátt sem þú hefur þá alheimsorkan þér allt gefur. Byrjaðu núna og vertu í mínútunni til meika þetta allt saman.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Sir Ian Mckellen, leikari, 25. maí
  • Anita Briem, leikkona, 29. maí
  • Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, 29. maí
  • Marilyn Monroe, leikkona, 1. júní
  • Donald Trump, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 14. júní
  • Xi Jinping, stjórnmálamaður, 15. júní
  • Boris Johnson, stjórnmálamaður, 19. júní
  • Dagur B Eggertsson, borgarstjóri, 19 júní





Fleiri fréttir

Sjá meira


×