Innlent

Samfylkingin yfir 30 prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Kristrún hefur rifið fylgi Samfylkingarinnar hressilega upp.
Kristrún hefur rifið fylgi Samfylkingarinnar hressilega upp. Vísir/Vilhelm

Samfylkingin er enn stærsti flokkur landsins samkvæmt könnunum. Flokkurinn mælist nú með yfir 30 prósent fylgi í fyrsta sinn í fjórtán ár.

Þetta er niðurstaða þjóðarpúls Gallúp sem RÚV greinir frá.

Samkvæmt tölum Gallúp mældist Samfylkingin síðast með yfir þrjátíu prósent fylgi í apríl árið 2009. Flokkurinn fékk tæplega 30 prósent fylgi í alþingiskosningum það ár og tók forystu í ríkisstjórn landsins í kjölfar þeirra. 

Fylgi Samfylkingarinnar hefur aukist jafnt og þétt frá því að Kristrún Frostadóttir tók við formennsku í október á síðasta ári. Nú mælist flokkurinn með 30,1 prósent. 

Sjálfstæðisflokkur er enn næst stærsti flokkurinn með 20,4 prósent fylgi. Píratar mælast með 9,6 prósent og Miðflokkurinn, sem bætir við sig fylgi, 8,6 prósent.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×