Lífið

Ókeypis kjötsúpa á Hvolsvelli í dag

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Ókeypis íslensk kjötsúpa í boði SS verður fyrir alla frá klukkan 13:00 til 16:00 í dag á miðbæjartúninu á Hvolsvelli.
Ókeypis íslensk kjötsúpa í boði SS verður fyrir alla frá klukkan 13:00 til 16:00 í dag á miðbæjartúninu á Hvolsvelli. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Unnendur íslensku kjötsúpunnar ættu að vera á Hvolsvelli um helgina því þar fer fram kjötsúpuhátíð. Fjölbreytt dagskrá er í boði og í dag er gestum og gangandi boðið upp á ókeypis kjötsúpu á miðbæjartúni staðarins.

Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli er ein af þessum árlegu bæjarhátíðum landsins. Hátíðin hófst á fimmtudagskvöld og lýkur í hádeginu á morgun með sýningu leikhópsins Lottu. Í gærkvöldi var súpuröltþar sem íbúar og gestir gátu gengið á milli nokkurra húsa og fengið sér kjötsúpu. Og í gær var líka nýr leikskóli vígður á Hvolsvelli, sem hefur fengið nafnið Aldan.

Anton Kári Halldórsson er sveitarstjóri Rangárþings eystra.

„Svo eru dansleikir og hátíðarhöld, tívolí, tónleikar, verðlaunaafhendingar og nefndu það bara. Kjötsúpuhátíðin byrjaði fyrir hartnær tuttugu árum, sem uppskeruhátíð í lok sumars og fólki fagnað með því að bjóða því upp á kjötsúpu,” segir Anton Kári.

Í dag milli 13:00 og 16:00 býður Sláturfélag Suðurlands öllum upp á ókeypis kjötsúpu á meðan birgðir endast á miðbæjartúninu á Hvolsvelli.

En hvað er það við kjötsúpuna, sem er svona heillandi?

„Ég held að það sé bara besti matur, sem þú getur fengið. Orkuríkasti og næringarríkasti og já, við getum ekki hugsað okkur neitt betra.”

Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, sem býður alla hjartanlega velkomna á kjötsúpuhátíðina um helgina.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og þið borðið mikið af kjötsúpu í þessu sveitarfélagi eða hvað?

„ Ætli það sé ekki tvisvar í viku, nei, nei, en hún er vel metin hér”, segir Anton Kári.

Hann segir alla velkomna á Hvolsvöll um helgina.

„Já, já, allir velkomnir, nóg pláss fyrir alla og bara endilega að kynna sér dagskrána, þetta verður glæsileg hátíð.”

Dagskrá hátíðarinnar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×