Innlent

Soffía Svan­hvít kjörin for­seti Hall­veigar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ný stjórn Hallveigar – Ungs jafnaðarfólks í Reykjavík (frá vinstri): Steindór Örn Gunnarsson, Brynjar Bragi Einarsson, Soffía Svanhvít Árnadóttir, Árni Dagur Andrésson, Ingiríður Halldórsdóttir og Agla Arnars Katrínardóttir. Á myndina vantar Sigurð Einarsson Mäntylä.
Ný stjórn Hallveigar – Ungs jafnaðarfólks í Reykjavík (frá vinstri): Steindór Örn Gunnarsson, Brynjar Bragi Einarsson, Soffía Svanhvít Árnadóttir, Árni Dagur Andrésson, Ingiríður Halldórsdóttir og Agla Arnars Katrínardóttir. Á myndina vantar Sigurð Einarsson Mäntylä. Hallveig

Soffía Svanhvít Árnadóttir var kjörin forseti Hallveigar – Ungs jafnaðarfólks í Reykjavík á föstudag. Hún tekur við af Pétri Marteini Urbancic Tómassyni sem hefur gengt stöðunni undanfarin tvö ár.

Soffía Svanhvít er tuttugu ára nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og hefur síðastliðið ár verið framhaldsskólafulltrúi í framkvæmdastjórn Ungs jafnaðarfólks.

Aðalfundur Hallveigar fór fram föstudaginn 18. ágúst, á Hallveigarstíg 1 í Reykjavík, og ný stjórn félagsins var kjörin á fundinum. Eftirfarandi náðu kjöri í stjórn Hallveigar 2023-2024:

  • Soffía Svanhvít Árnadóttir forseti, nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands
  • Agla Arnars Katrínardóttir, nemi í hagnýtri stærðfræði við Háskóla Íslands
  • Árni Dagur Andrésson, nemi í matvælafræði við Háskóla Íslands
  • Brynjar Bragi Einarsson, nemi við Menntaskólann í Hamrahlíð
  • Ingiríður Halldórsdóttir, öryrki
  • Sigurður Einarsson Mäntylä, nemi í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands
  • Steindór Örn Gunnarsson, nemi í húsasmíði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti

„Þetta er öflugur og fjölbreyttur hópur ungs jafnaðarfólks í Reykjavík og ég hlakka til að vinna með þeim að því að styrkja starf Hallveigar enn frekar,“ sagði Soffía í tilkynningu.

„Ég held að meirihluti Íslendinga sé jafnaðarfólk inn við beinið“

„Ég vil gera stjórnmálin aðgengilegri fyrir allt ungt fólk; tala mannamál, hlusta og leyfa fólki að hafa sínar skoðanir. Verkefni okkar í UJ er að fylkja ungu fólki saman um jafnaðarstefnuna,“ segir Soffía Svanhvít um markmið sín sem forseti.

„Mér líst vel á áherslur Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, um að fara aftur í kjarna jafnaðarstefnunnar og leggja ofuráherslu á kjör, velferð og efnahag venjulegs fólks. Ég held að meirihluti Íslendinga sé jafnaðarfólk inn við beinið en það þarf að hvetja ungt fólk til meiri þátttöku í stjórnmálum og það vil ég gera,“ segir Soffía Svanhvít.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×