Innlent

Skuldir fljótar að safnast upp ef nokkrir mánuðir fara í ranga átt

Bjarki Sigurðsson skrifar
Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar. 
Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar.  Aðsend

Formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar segir fimleikafélag bæjarins þurfa að sameinast öðru íþróttafélagi svo laga megi reksturinn. Bærinn mun sjá til þess að fimleikastarfið hefjist aftur í haust, sama hvað, en félagið skuldar um tuttugu milljónir. 

Í gær var greint frá því að FIMAK, fimleikafélag Akureyrar, glímir við fjárhagserfiðleika en útlit er fyrir að félagið muni skulda yfir tuttugu milljónir króna í lok sumars. Hefur bærinn þurft að hlaupa undir bagga hvað varðar launakostnað í sumar. Var það gert með því skilyrði að félagið færi í sameiningarviðræður með annað hvort Þór eða KA sem eru stærstu íþróttafélög bæjarins.

Heimir Örn Árnason, formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar, segir afarkostinn hafa verið settan svo hægt væri að hafa meira eftirlit með fjármálunum.

„Þetta er allt gert í sjálfboðavinnu og í stóru félögunum eru stöðugildi í vinnu bara til að sjá um fjármálin. Það er svona aðalástæðan. Þannig það séu ekki einhverjir foreldrar að sjá um alla þessa veltu sem er hjá fimleikadeildinni,“ segir Heimir en veltan er um sjötíu milljónir á ári. 

Ekki farið rétt að í fjármálunum

Síðustu sex ár hafi klúbburinn ekki verið með fjármálin alveg í lagi.

„Æfingagjöldin voru ekki hækkuð nægilega mikið, ekki rukkað fyrir ferðakostnað. Þetta er rosalega fljótt að koma í svona stórum klúbbi ef nokkrir mánuðir fara í ranga átt, þá er þetta rosa fljótt að koma. Þetta verður bara allt í góðum blóma næstu árin, ekki spurning,“ segir Heimir. 

Um 450 iðkendur eru í fimleikafélaginu og segir Heimir að sama hvað muni þeir geta haldið áfram að æfa fimleika í haust.

„Við búum bara til gott plan og bara verum bjartsýn um næstu ár fyrir hönd félagsins,“ segir Heimir að lokum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×