Matur

Banda­rískur sjón­varps­maður gagn­rýnir ís­lenskt matar­verð

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Rick er með yfir milljón fylgjendur á facebook.
Rick er með yfir milljón fylgjendur á facebook. Facebook

Bandaríski sjónvarpsmaðurinn Rick Steves, sem einnig hefur gefið út ferðahandbækur, heimsótti Ísland á dögunum. Í Facebook-færslu um dvölina ber hann saman verðlag á veitingastöðum og í matvörubúðum en að hans sögn er verðmunurinn talsverður.

„Það er fáránlega dýrt að vera á Íslandi. Og á sumrin, þegar eftirspurn er langt umfram framboð, eru herbergin sérstaklega dýr,“ segir Steves í færslunni. „Maturinn er líka dýr, en þú getur borðað furðu vel með því að fara í matvörubúð þar sem innfæddir versla.“

Þá segist hann hafa borgað minna fyrir að kaupa sér morgun-, hádegis-, og kvöldverð úti í matvörubúð heldur en myndi kosta að kaupa hamborgara, franskar og bjór á knæpu. Einungis fimm þúsund krónur hefðu þessar máltíðir kostað hann úti í búð, aðeins meira en morgunverður á hótelinu hans. 

Í ummælum undir færslunni segir hann að verð á veitingahúsum á Íslandi sé hátt. Innlendi bjórinn sé þó góður en fínni drykkir séu grimmilega dýrir. „Og þökk sé fjölmörgu duglegu fólki frá þróunarlöndum sem ráðið hefur verið í vinnu á hótelum og veitingastöðum, ríkir hér blómleg og alþjóðleg veitingasena sem er ódýrari, og oft áhugaverðari en hefðbundinn matur á Íslandi,“ segir hann loks. 

Með færslunni lét hann fylgja mynd af þeim matvörum sem hann keypti í matvörubúðinni. Meðal annars má sjá gríska jógúrt frá Örnu, kjúklingaálegg frá Kjarnafæði og góðost frá Mjólkursamsölunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×