Matur

Æfir yfir Önnu Frank-ham­borgara og Adolfs-frönskum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Veitingastaðurinn hefur nú fjarlægt réttina af metseðlinum.
Veitingastaðurinn hefur nú fjarlægt réttina af metseðlinum. Getty

Skyndibitastaðurinn Honky Donky Diner í Rafaela-borg Argentínu sætir nú mikillar reiði vegna rétta sem finna mátti á matseðli staðarins. Um er að ræða hamborgara sem kenndur er við Önnu Frank, stúlku sem fórst í helförinni, og franskar kartöflur nefndar Adolf og vísa til nasistaleiðtogans Adolfs Hitler.

Gyðingasöfnuðir í Argentínu segja nýlegu viðbótina á matseðilinn móðgandi og viðbjóðslega. Rétturinn Adolf Fries, eða Adolfs-franskar , fól í sér franskar kartöflur með beikoni og cheddarosti. Önnu Frank-borgarinn samanstóð af hundrað grömmum af nautakjöti, káli, tómötum, súrum gúrkum og mæjónesi. Borgarinn kostaði ellefu dollara, eða í kringum fimmtán hundruð krónur.

Þá seldi staðurinn að auki franskar kartöflur að nafni Benito, kenndar við fasistaleiðtogann Benito Mussolini og Gengis, kenndir við Gengis Khan, leiðtoga Mongólaveldisins.

Skjáskot af matseðlinum má sjá hér að neðan.

Réttirnir hafa nú verið fjarlægðir af matseðlinum og vetingarstaðurinn sent frá sér afsökunarbeiðni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×