Matur

At­vinnu­menn í kapp­áti kljást við ís­lenska ham­borgara

Máni Snær Þorláksson skrifar
Þau Katina og Randy eru stödd á Íslandi þessa stundina og ætla meðal annars að skófla svona hamborgaraturni í sig.
Þau Katina og Randy eru stödd á Íslandi þessa stundina og ætla meðal annars að skófla svona hamborgaraturni í sig. Instagram/Aðsend

Þau Randy Santel og Katina Dejarnett eru þessa stundina stödd á Íslandi en þau eru bæði atvinnumenn í kappáti. Í dag tóku þau mataráskorun á Gastrotruck í Mathöll Granda en á þriðjudaginn er stefnan sett á hamborgarastaðinn 2 Guys.

„Ísland er að mig minnir fertugasta landið sem þau eru að heimsækja. Þau eru atvinnumenn í því að ferðast um heiminn og taka þessar mataráskoranir,“ segir Hjalti Vignisson, eigandi hamborgarastaðsins 2 Guys í samtali við fréttastofu.

Hjalti ætlar að bjóða kappátsmeisturunum upp á hamborgaraturn og með því. „Ég hugsa að þetta verði sex borgarar sem verður bara staflað í turn. Svo verða ostafranskar og eitthvað meira meðlæti með þessu,“ segir hann. 

Hjalti Vignisson ætlar að taka á móti Katinu og Randy á þriðjudaginn.Aðsend

„Þau eru að fara að taka einn af öllum borgurum á matseðli sem verður bara raðað upp í stóran turn. Þau hafa einhvern ákveðið langan tíma til að klára það ásamt meðlæti. Þetta er kannski eitt og hálft kíló af mat sem er helmingur af því sem maður hefur verið að sjá þau borða í myndböndum.“

Hjalti segir að þau muni fá stuttan tímaramma til að klára allan matinn, um tíu til fimmtán mínútur. Eftir þetta verði áskorunin svo í boði á staðnum fyrir þá sem vilja. Ef fólki tekst að klára allan matinn innan ákveðins tíma fái það máltíðina ókeypis.

Máltíð fyrir sex manns kláruð á tuttugu mínútum

Katina og Randy eru líklegast ekki hrædd við að skófla hamborgarturninum hans Hjalta í sig, enda eru þau atvinnumenn í faginu eins og fram hefur komið. Í dag fengu þau til að mynda hamborgara sem var 3,2 kíló að þyngd.

„Í einu myndbandi sem ég horfði á voru þau með kíló af pönnukökum, 500 grömm af beikoni, tveir sjeikar og franskar með því. Maður horfir á þetta og hugsar að þetta sé máltíð fyrir sex manns og þetta er bara klárað á tuttugu mínútum,“ segir Hjalti.

Svona lagað hefur þó ekki verið algengt á Íslandi og kom það þeim Katinu og Randy á óvart. „Þau voru hissa á því að þetta væri í raun og veru ekki til hérna,“ segir Hjalti. Þau hafi ekki lent í því áður að eiga erfitt með að finna mataráskoranir þar sem þau ferðast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×