Fótbolti

Breiðablik og Ísland í aðalhlutverki í stórri grein á ESPN

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hér má sjá fyrirsögnina og aðalmyndina á fréttinni á ESPN vefnum.
Hér má sjá fyrirsögnina og aðalmyndina á fréttinni á ESPN vefnum. Skjámynd/ESPN

ESPN gefur lesendum sínum sína upplifun af Meistaradeildarleikjunum sem fóru fram í Kópavogi á dögunum. Ræddu meðal annars við einn svekktan leikmann sem fékk ekki að heyra Meistaradeildarlagið fyrir rassskellinn á móti Blikum.

Meistaradeildin í fótbolta 2023-24 er farin af stað en hún hófst í ár með for-forkeppni á Kópavogsvellinum í síðustu viku.

Blikar tryggði sér sæti í forkeppninni með sannfærandi hætti, fyrst sögulega stórum 7-1 sigri á Tre Penne frá San Marinó í undanúrslitunum og svo 5-0 sigri á Buducnost frá Svartfjallalandi í úrslitaleiknum.

ESPN mætti til Íslands og í Kópavoginn og fjallaði um fyrstu leiki keppninnar í ár. Blaðamaðurinn Mark Ogden hefur nú skilað inn athyglisverði grein um leikina og heimsókn sína til Íslands.

Greinin hófst á stuttu viðtali við Antonio Barretta hjá Tre Penne sem var að upplifa æskudrauminn sinn að skora í Meistaradeildinni en hann skoraði mark liðsins í 7-1 tapinu á móti Blikum.

„Það olli smá vonbrigðum að fá ekki að heyra Meistaradeildarlagið fyrir leikinn. Ég held að UEFA ætti að laga það fyrir okkur en engu að síður var það mjög góð tilfinning að skora í Meistaradeildinni,“ sagði Antonio Barretta.

Ogden ræðir við leikmenn úr liðunum og fer yfir aðstæður bæði á Kópavogsvelli og á hinu dýra Íslandi. Það er farið yfir hvað það kostaði liðin að koma og gista á Íslandi.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Blika, talaði um þá ótrúlegu reynslu að fá að taka þátt í Evrópukeppni og um muninn á liðunum frá litlu þjóðunum og þeim stærri og sterkari.

Ogden ræðir einnig við Höskuld Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, sem fór á kostum í þessum tveimur leikjum. Höskuldur segir þar að fótboltinn sé hans aðalstarf en að hann sinni einnig bakarastörfum í kringum hátíðirnar.

Það má sjá lesa þessi viðtöl sem og lýsingu á heimsókninni til Íslands með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×