Fótbolti

Benítez til­búinn að snúa aftur til Napoli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Snýr Benitez aftur til Napoli?
Snýr Benitez aftur til Napoli? Simon Stacpoole/Getty Images

Hinn spænski Rafael Benítez segist vera tilbúinn að taka aftur við stjórn Napoli en hann stýrði liðinu frá 2013 til 2015.

Napoli varð á dögunum Ítalíumeistari í fótbolti eftir langa bið. Þrátt fyrir frábært tímabil hefur Luciano Spalletti, þjálfari liðsins, ákveðið að kalla þetta gott en hann segist einfaldlega þurfa á hvíld að halda.

Hinn 63 ára gamli Benítez virðist endurnærður eftir að hafa verið sagt upp hjá Everton í janúar á síðasta ári. Spánverjinn hefur viðurkennt að hann sé til í að taka aftur við sem þjálfari Napoli en segir það ekki vera í sínum höndum.

„Ég vil vinna, ég vil ekki vera í miðjumoði. Ákvörðunin er þó ekki mín að taka en ég er tilbúinn. Ég fylgist með og greini allt, hef alltaf gert það og vil halda því áfram þangað til ég hætti,“ sagði Benítez í viðtali við Sky Sports.

Undir stjórn Benítez vann Napoli bæði Ofurbikarinn sem og Coppa Italia, ítölsku bikarkeppnina. Hann yfirgaf liðið eftir tvö ár og hélt til Real Madríd. Þaðan fór hann til Newcastle United, Dalian Professional í Kína og svo Everton.


Tengdar fréttir

Napoli vann og endaði með níutíu stig

Napoli vann sigur í lokaleik sínum í Serie A á tímabilinu. Liðið er fyrir löngu síðan búið að tryggja sér ítalska meistaratitilinn en með sigrinum í dag náði Napoli níutíu stigum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×