Innlent

Smá­bátur strandaði við Arnar­stapa

Árni Sæberg skrifar
Freyja var kölluð til vegna strandsins.
Freyja var kölluð til vegna strandsins. Vísir/Vilhelm

Smábátur strandaði skammt innan við Arnarstapa á tíunda tímanum í kvöld. Einn var um borð í bátnum og hann komst í land af sjálfsdáðum og var fluttur á sjúkrastofnun á Ólafsvík.

Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi.

Skipverjinn hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og taldi ekki yfirvofandi hættu á ferðum.

Landhelgisgæslan kallaði út varðskipið Freyju sem var í grenndinni ásamt björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi. Einnig var beðið um að lögregla og björgunarsveitir færu að bátnum landleiðina. 

Hæglætisveður var á svæðinu. Skipverjinn komst í land og lögregla sá um að flytja hann til Ólafsvíkur. Hann hruflaðist og var fluttur sjúkrastofnun á Ólafsvík. 

Freyja verður á svæðinu í nótt.

Á myndinni hér að neðan, sem fengin er af vefnum Marine traffic, má sjá ferðir bátsins í kvöld.

Báturinn strandaði við Arnarstapa.Marinetraffic.com


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×