Enski boltinn

Splæsti í lúxusíbúð í miðborg Oslóar

Smári Jökull Jónsson skrifar
Það mun ekki væsa um Haaland í nýju íbúðinni í Osló.
Það mun ekki væsa um Haaland í nýju íbúðinni í Osló. Vísir/Getty

Lífið leikur við Erling Haaland þessa dagana. Á dögunum sló hann markamet ensku úrvalsdeildarinnar og í vikunni tryggði Manchester City sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Það gengur sömuleiðis vel hjá Haaland á öðrum vígstöðum.

Erling Haaland hefur komið sem stormsveipur inn í ensku úrvalsdeildina á tímabilinu en þessi tuttugu og tveggja ára gamli Norðmaður sló nýverið markamet ensku úrvalsdeildarinnar en hann hefur skorað 36 mörk í 33 leikjum á tímabilinu.

Talið er að Haaland þéni 375.000 pund á viku hjá Manchester City sem gerir rúmar 65 milljónir íslenskra króna og hann fær 160 milljónir íslenskra króna í bónus vinni City ensku úrvalsdeildina en það gæti orðið að veruleika nú um helgina. Þetta er að sjálfsögðu fyrir utan samstarfssamninga við hin ýmsu fyrirtæki.

Haaland mun vafalaust nýta sér íbúðina þegar hann verður á ferðinni með norska landsliðinu í Osló.Vísir/Getty

Og nú virðist sem Haaland sé byrjaður að eyða peningunum. Samkvæmt frétt Aftonbladet hefur Haaland fest kaup á lúxusíbúð í miðborg Oslóar. 

Haaland greiðir tæpar 470 milljónir íslenskra króna fyrir íbúðina sem er 154 fermetrar að stærð, á áttundu hæð í tíu hæða húsi. Kaupin gengu í gegn þann 4. maí síðastliðinn, daginn eftir að Haaland skoraði mark númer 35 í ensku úrvalsdeildinni og sló markametið umtalaða.

Haaland kaupir íbúðina af milljarðamæringnum Runar Vatnes sem hafði átt hana í þrjú ár. Vatnes keypti íbúðina á 360 milljónir króna og íbúðin því heldur betur aukið virði sitt síðustu árin. 

Fermetraverðið sem Haaland borgar er tæpar þrjár milljónir íslenskra króna sem verður að teljast ansi hátt en Norðmaðurinn fótfrái á líklegast ekki í erfiðleikum með að reiða fram þá upphæð í reiðufé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×