Lífið

Einstakar svalir við þakíbúð Halla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haraldur bauð Völu Matt í heimsókn.
Haraldur bauð Völu Matt í heimsókn.

Athafnamaðurinn og maður ársins Haraldur Þorleifsson er nýbúinn að opna veitingastað sem hann kallar Anna Jóna til minningar um móður sína.

Halli eins og hann er oftast kallaður er þekktur fyrir einstakt stafrænt fyrirtæki sitt Ueno sem sló í gegn og hann seldi svo Twitter.

Einnig er hann þekktur fyrir átakið Römpum upp Ísland og ýmis góðgerðarmál sem hann af sinni alþekktu hógværð vill aldrei tala um.

Nú er Halli kominn heim og hann er að vinna að ýmsum spennandi verkefnum og meðal annars gefa út mjög fallega tónlist.

Vala Matt fór og skoðaði nýja veitingastaðinn hans og einnig fór Vala út á einstakar svalir við þakíbúð Halla sem staðsett er alveg í miðbænum með frábæru útsýni yfir miðborgina. Halli býr ásamt eiginkonu, Margréti Rut Eddudóttir, og börnum hafa komið sér vel fyrir íbúðinni.

„Við ætluðum aldrei að koma heim og það var eiginlega bara Covid sem ýtti okkur af stað. Þá ætluðum við að stoppa stutt en síðan bara festumst við,“ segir Haraldur og heldur áfram.

„Ég ólst upp hérna hinum megin við götuna og það var skrýtið að koma hingað heim, í sama hverfi og næstum því við sömu götu. Hérna sér maður borgina alveg á nýjan hátt,“ segir Halli en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×