Lífið

Graham Norton kallaði Einar „svifaseinasta strippara heims“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Einar Hrafn kynnir stigin.
Einar Hrafn kynnir stigin.

„Hatari er eins og svifaseinasti strippari heims,“ sagði Eurovision-kynnirinn Graham Norton í Liverpool í kvöld, þegar Hatarinn Einar Hrafn Stefánsson hafði kynnt dómnefndarstig okkar Íslendinga í kvöld.

Íslenska dómnefndin reyndist hrifnust af Ástralíu og gaf strákunum í hljómsveitinni Voyager 12 stig. Trommugimpið Einar kynnti stigin með miklum tilþrifum, í fullum Hataraskrúða. Hann tíndi löturhægt af sér leðurólar- og grímur áður en hann urraði: „ÁSTRALÍA“

Það var þá sem Norton greip í áðurnefnda samlíkingu, sem verður að teljast nokkuð lýsandi. Kynningu Hatara má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×