Fótbolti

Búinn að fá nóg af því að vera bendlaður við bölvun tengda Man City

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Yaya er búinn að fá nóg.
Yaya er búinn að fá nóg. Nordic Photos/Getty Images

Yaya Touré, fyrrverandi miðjumaður Manchester City, er búinn að fá sig fullsaddan af því að fólk sé að bendla hann við umræðu um „bölvun“ sem fylgi enska knattspyrnuliðinu í Meistaradeild Evrópu.

Annað kvöld fara Englandsmeistarar Manchester City til Madrídar þar sem þeir mæta Spánar- og Evrópumeisturum Real Madríd í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Liðin mættust einnig á síðustu leiktíð en þá hafði Real betur.

Dimitri Seluk, fyrrverandi umboðsmaður Touré, lenti upp á kant við Pep Guardiola, þjálfara Man City, árið 2018 þegar þjálfarinn ákvað að losa sig við Touré. Seluk sagðist hafa ráðið seiðkarla (e. shamans) frá Afríku til að leggja bölvun á Guardiola sem yrði þess valdandi að hann myndi ekki vinna Meistaradeildina meðan hann væri þjálfari Man City.

Seluk dúkkaði upp í fjölmiðlum á nýjan leik í aðdraganda leiksins gegn Real Madríd annað kvöld og sagði að bölvuninni hefði verið lyft og Man City gæti loks farið alla leið í keppni þeirra bestu.

Hinn 39 ára gamli Touré, sem lagði skóna á hilluna árið 2020, hefur fengið nóg af því að nafn sitt beri á góma í hvert skipti sem Seluk opnar á sér munninn. Hann hefur beðið fjölmiðla um að „halda áfram“ og þá segir hann einnig að staðalímyndir sem þessar séu skaðlegar.

„Aftur hefur verið vitnað í fyrrverandi umboðsmann minn í fjölmiðlum vegna „bölvunar,“ segir Touré á Twitter-síðu sinni. Hann heldur áfram.

„Vinsamlegast verið ekki að bendla mig við þessa þvælu og lötu staðalímyndir um bölvanir frá Afríku. Fjölmiðlar, haldið áfram. Þessi maður hefur ekkert með mig að gera á neinn hátt. Að ýta undir staðalímyndir sem þessar er skaðlegt,“ sagði Touré að endingu.

Yaya Touré lék með liðum á borð við Olympiacos, Monaco, Barcelona og Manchester City á ferli sínum. Hann fjölda titla með bæði Barcelona og Man City. Þá var hann fyrirliði Fílabeinstrandarinnar þegar landið varð Afríkumeistari árið 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×