Lífið

Eftir áfallið fór Edda í sálgæslunám

Stefán Árni Pálsson skrifar
Edda tókst á við mikið áfall þegar að Gísli Rúnar Jónsson féll frá.
Edda tókst á við mikið áfall þegar að Gísli Rúnar Jónsson féll frá.

Edda Björgvinsdóttir leikkonan dáða er núna á tímamótum því hún vill flytja og vera nær börnunum sínum og er hún því að hugsa um að selja fallegu íbúðina sína í 101.

Vala Matt fór og skoðaði þessa skemmtilegu og rómantísku íbúð sem er í anda Eddu og mátti sjá í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Edda var klára nám í sálgæslu og fór hún einnig yfir það hvernig hún mun nýta sér það í einkalífinu og í námskeiðum sem hún heldur út hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Edda segist hafa farið í námið eftir að hafa misst fyrrverandi eiginmann sinn, leikarann og leikstjórann vinsæla Gísla Rúnar Jónsson.

„Þegar maður lendir í svona áfalli eins og við fjölskyldan þá fer maður að hugsa hvernig get ég nýtt það. Hvernig get ég nýtt lífsreynsluna til að hugsanlega mögulega hjálpað einhverjum. Ég hugsaði strax að mig langaði að vinna með Sorgarmiðstöðinni sem er svo stórkostlegt fyrirbæri og læknaði einhvern veginn sálirnar okkar. Þetta nám er stórkostlegt og við lærum allt um áföll,“ segir Edda og heldur áfram.

„Þetta er fræðsla og hvað er vitað um áföll og hvernig fara áföll með fólk. Hvernig fara þau með sálina í fólki og hvernig fara þau með líkamann. Það að eiga möguleika á því að grípa inn í og aðstoða fólk er mest virði í heiminum fyrir mig núna,“ segir Edda.

Edda vill vera nær fjölskyldunni sinni en býr í dag í fallegri íbúð í miðborginni þar sem hún er komin á öll kaffihús borgarinnar á einu augabragði.

„Við fjölskyldan höfum eitthvað rætt það að kaupa eitt risahús saman,“ segir Edda en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×