Innlent

Um 70 prósent fæðinga landsins fara fram á Landspítalanum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir, ljósmóðir á Landspítalanum, sem er alsæl í sínu starfi.
Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir, ljósmóðir á Landspítalanum, sem er alsæl í sínu starfi. Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Það er lífstíll og list“ að vera ljósmóðir segir rúmlega þrítug ljósmóðir, sem segist vera í draumastarfinu. Um 70% allra fæðinga landsins á hverju ári fara fram á fæðingadeild Landspítalans. Við fengum að kynnast störfum ljósmæðra í þættinum „Mig langar að vita“, sem sýndur var á Stöð 2 mánudagskvöldið 10. apríl. Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinn á Stöð 2+. Magnús Hlynur Hreiðarsson er umsjónarmaður þáttanna.

Mér hefur alltaf fundist eitthvað heillandi við orðið „Ljósmóðir” og starf ljósmæðra, þær eru að vinna svo magnað starf, taka á móti nýjum lífi í heiminn, það er eitthvað svo stórkostlegt við það.

Í þættinum fáum við að kynnast störfum ljósmæðra. Við byrjum á fæðingardeild Landspítalans, sem er langstærsta fæðingardeild landsins en þar fæðast um og yfir 70 % allra barna á hverju ári í landinu. Níu fæðingarstofur eru á deildinni.

Birna Gerður Jónsdóttir er yfirljósmóðir á fæðingarvakt Landspítalans.

„Ég hugsa að ég sé með 90 manns í allt, bæði ljósmæður, sjúkraliða og sérhæfða starfsmenn, þannig að þetta er svolítið stór deild og mikið utanumhald en þetta er líka mjög skemmtilegt. Það eina, sem ég sakna að ég tek ekki á móti börnum á meðan ég er í þessu. Það er dálítið erfitt,“ segir Birna Gerður.

Birna Gerður Jónsdóttir, yfirljósmóðir á fæðingarvakt Landspítalans. Hún er með um 90 starfsmenn í vinnu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sunna María, 31 árs ljósmóðir segist vera í draumastarfinu. Hún segir starfið vera lífsstíl og list.

„Mér finnst mjög gaman að vinna með fólki og hef áhuga á málefnum kvenna. Maður þarf ekki að vera nörd eða sérfræðingur í neinu, heldur medium í mjög mörgu og það hentar mér bara fínt,“ segir Sunna María.

En hvernig lýsir hún starfinu?

„Það er ógeðslega erfitt að lýsa því. Þetta er svona tilfinningarússíbani. Maður er endalaust að lesa nýtt fólk og nýjar aðstæður hverju sinni. Maður þarf að vera rosalega næmur á bara karaktera og andrúmsloft finnst mér. Maður má ekki heldur trana sér of mikið fram en vera sterk á réttum augnablikum,“ segir Sunna María.

Sunna María Helgadóttir, ljósmóðir á Landspítalanum, sem segist vera í draumastarfinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×