Innlent

Fresta leitinni til morguns

Árni Sæberg skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Stefáni Arnari Gunnarssyni, 44 ára.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Stefáni Arnari Gunnarssyni, 44 ára. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Ákveðið hefur verið að fresta leit að Stefáni Arnari Gunnarssyni til morguns. Henni var hætt þegar nokkuð var liðið á kvöldið og birtuskilyrði fóru þverrandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem leitað hefur Stefáns Agnars logandi ljósi í dag en síðast var vitað um ferðir hans síðdegis í gær.

Þá segir að þungamiðja leitarinnar hafi verið á og við Álftanes í dag og við hana hafi lögreglan notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslunnar og nálægt 150 björgunarsveitarmanna. 

Við sögu hafi komið drónar, þyrla, kafarar og spor- og víðavangsleitarhundar svo fátt eitt sé nefnt.

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Stefáns Arnars, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×