Fótbolti

Isco á förum frá Sevilla eftir að­eins fjóra mánuði hjá fé­laginu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Isco í leik gegn FC Kaupmannahöfn.
Isco í leik gegn FC Kaupmannahöfn. Sergei Gapon/Getty Images

Spánverjinn sóknarþenkjandi Isco gekk í raðir Sevilla í sumar eftir að hafa verið leikmaður Real Madríd til fjölda ára. Hann skrifaði undir samning til ársins 2024 en virðist nú á leið frá Andalúsíu.

Francisco Román Alarcón Suárez, betur þekktur sem Isco, var leikmaður Real Madríd frá 2013 til 2022. Þar áður lék hann með Valencia og Málaga. Þó hann hafi ekki verið lykilmaður hjá Real þá lék hann nokkuð stóra rullu og vann fjölda titla:

  • Meistaradeild Evrópu: 5 
  • HM félagsliða: 4 
  • La Liga [spænska úrvalsdeildin]: 3 
  • Spænski ofurbikarinn: 3 
  • Ofurbikar Evrópu:
  • Spænski konungsbikarinn: 1

Það er því eðlilegt að Sevilla hafi talið sig vera dottið í lukkupottinn þegar hinn þrítugi Isco samdi við félagið í sumar. Þáverandi þjálfari Sevilla, Julen Lopetegui, var mjög hrifinn af leikmanninum en hann er nú tekinn við Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni.

Julen Lopetegui er í dag þjálfari Úlfanna á Englandi.David Ramos/Getty Images

Skömmu eftir að brotthvarf Lopetegui var staðfest kom í ljós að Sevilla vildi losna við Isco. Það er nú nær öruggt að Sevilla mun leyfa honum að fara frítt í janúar og hver veit nema Lopetegui sæki sinn gamla lærisvein til Englands.

Isco hefur spilað 38 A-landsleiki fyrir Spán og skorað 12 mörk en var ekki í hópnum sem var valinn til að fara á HM í Katar. Þar duttu Spánverjar út í 16-liða úrslitum eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Marokkó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×