Sport

UFC henti eigin bardagakappa út úr keppnishöllinni á skýlunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Walker fagnar sigri í T-Mobile Arena. Skömmu síðar var búið að henda honum út.
Walker fagnar sigri í T-Mobile Arena. Skömmu síðar var búið að henda honum út. vísir/getty

UFC var með risabardagakvöld í Las Vegas um nýliðna helgi. Óhætt er að segja að eitthvað hafi klikkað í umgjörðinni því einum að aðalbardagaköppum kvöldsins var hent út úr húsi á tánum fljótlega eftir sinn bardaga.

Þar er um að ræða Johnny Walker sem var í fyrsta aðalbardaga kvöldsins. Walker var í miklu stuði og hengdi andstæðing sinn í fyrstu lotu.

Hann var enn að fagna með þjálfara sínum og vinum er honum var hreinlega hent út úr T-Mobile Arena. Hann var þá á tánum, í keppnisskýlunni og meira að segja enn með hanskana.

Það var því frekar skrýtin sjón fyrir marga er hann mætti á hótelið sitt skólaus í skýlunni og með bardagahanskana.

Þjálfari Walker, John Kvanagh, sem einnig þjálfar Gunnar Nelson, myndaði þessa ótrúlegu uppákomu en allt var svo fyrirgefið að lokum er UFC ákvað að verðlauna Walker um 50 þúsund dollara fyrir frammistöðu kvöldsins.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×