Lífið

Miley Cyrus í kvikmynd með Dolly Parton

Elísabet Hanna skrifar
Dolly er guðmóðir Miley.
Dolly er guðmóðir Miley. Getty/Kevin Mazur

Söng- og leikkonan Miley Cyrus mun koma fram í nýrri kvikmynd sem guðmóðir hennar Dolly Parton stendur fyrir. Dolly fer með aðalhlutverkið myndarinnar en stjörnur eins og Jimmy Fallon, Willie Nelson, Ana Gasteyer og Billy Ray Cyrus munu einnig taka þátt í verkefninu.

Jólamynd

Myndin sem um ræðir er jólamynd og mun bera heitið Dolly Parton’s Mountain Magic Christmas. Myndin verður nútíma kvikmyndasöngleikur frá NBC sem fjallar um Dolly sjálfa sem er að búa til efni fyrir sjónvarp. Talið er að myndin muni innihalda þau jólalög sem Dolly hefur nú þegar gefið út. 

Í myndinni er hún að reyna að koma jólaandanum sem hún finnur í Dollywood inn í sjónvarpsþáttinn sem hún er að framleiða þegar þrír vitringar frá fjöllunum koma og fara með hana í gegnum fortíðina hennar. 

Þegar það kemur loks að því að sýna þáttinn í myndinni er Dolly endurnærð og full af innblæstri, eftir ferðalagið í gegnum fortíðina, til þess að sýna heiminum hvar alvöru töfrar jólanna liggja.


Tengdar fréttir

Dolly Parton kemur Miley til varnar

Kántrísöngkonan Dolly Parton kemur ungstirninu Miley Cyrus til varnar í viðtali við London Evening Standard en Dolly er guðmóðir stjörnunnar umdeildu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×