Þjóðverjar tóku Evrópumeistarana í kennslustund

Valur Páll Eiríksson skrifar
Thomas Müller skoraði þriðja mark Þjóðverja.
Thomas Müller skoraði þriðja mark Þjóðverja. Alexander Hassenstein/Getty Images

Þjóðverjar unnu afar sannfærandi 5-2 sigur er liðið tók á móti Evrópumeisturum Ítala í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Joshua Kimmich kom Þjóðverjum yfir strax á tíundu mínútu áður en Ilkay Gundogan skoraði annað mark liðsins af vítapunktinum í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Staðan var því 2-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Thomas Müller skoraði þriðja mark Þjóðverja snemma í síðari hálfleik, en Timo Werner breytti stöðunni í 5-0 með tveimur mörkum á jafn mörgum mínútum þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Serge Gnabry lagði bæði mörk Werner upp.

Degnand Wilfried Gnonto klóraði í bakkann fyrir ítalska liðið með marki á 78. mínútu og Alessandro Bastoni lagaði stöðuna enn frekarmeð marki  í uppbótartíma. Nær komust þeir þó ekki og 5-1 sigur Þjóðverja því staðreynd.

Þjóðverjar sitja nú í öðru sæti riðilsins með sex stig eftir fjóra leiki, einu stigi meira en Ítalir sem sitja í þriðja sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira