Króatar bundu enda á sigurgöngu Dana | Mbappé bjargaði stigi fyrir Frakka

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mario Pasalic fagnar marki sínu í kvöld.
Mario Pasalic fagnar marki sínu í kvöld. James Williamson - AMA/Getty Images

Eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta máttu Danir þola 0-1 tap gegn Króatíu í kvöld. Á sama tíma reyndist Kylian Mbappé hetja Frakka er hann bjargaði stigi í 1-1 jafntefli liðsins gegn Austurríki.

Mario Pasalic skoarði eina mark leiksins þegar hann tryggði Króötum stigin þrjú gegn Dönum á 69. mínútu.

Jonas Wind hélt reyndar að hann hefði bjargað stigi fyrir danska liðið þegar hann kom boltanum í netið á 87. mínútu, en eftir myndbandsskoðun var markið dæmt af vegna rangstöðu.

Niðurstaðan varð því 0-1 sigur Króata sem nú eru með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leiki riðilsins. Krótara sitja í þriðja sæti riðilsins, tveimur stigum á eftir Dönum sem tróna á toppnum.

Þá reyndist Kilyan Mbappé hetja Frakka þegar hann tryggði liðinu stig með marki á 83. mínútu gegn Austurríki. Andreas Weimann hafði komið Austurríkismönnum yfir seint í fyrri hálfleik og niðurstaðan því 1-1 jafntefli.

Austurríki situr í öðru sæti riðilsins með fjögur stig, en Frakkar reka lestina með aðeins tvö stig úr fyrstu þremur leikjum sínum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira