Fótbolti

Byrjunarlið Íslands gegn Ísrael: Sá leikjahæsti með bandið og Hákon og Jón Dagur byrja

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Birkir Bjarnason hefur leikið 107 A-landsleiki, flesta allra knattspyrnukarla á Íslandi.
Birkir Bjarnason hefur leikið 107 A-landsleiki, flesta allra knattspyrnukarla á Íslandi. Getty/Matthew Pearce

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt um þá ellefu leikmenn sem byrja gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í kvöld.

Rúnar Alex Rúnarsson er á sínum stað í markinu, en fyrir framan hann í fjögurra manna varnarlínu eru þeir Hörður Björgvin Magnússon, Daníel Leó Grétarsson, Brynjar Ingi Bjarnason og Alfons Sampsted.

Birkir Bjarnason, leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, ber fyrirliðabandið á miðri miðjunni, en með honum á miðsvæðinu eru þeir Hákon Arnar Haraldsson og Þórir Jóhann Helgason. 

Jón Dagur Þorsteinsson og Arnór Sigurðsson eru úti á köntunum og í fremstu víglínu er Sveinn Aron Guðjohnsen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×