Innlent

Tókst að bjarga Sindra GK í Sand­gerðis­höfn

Atli Ísleifsson skrifar
Unnið að björgun Sindra GK í Sandgerðishöfn í gærkvöldi.
Unnið að björgun Sindra GK í Sandgerðishöfn í gærkvöldi. Sandgerðishöfn

Slökkvilið á Suðurnesjum var kallað út eftir að tilkynnt var um að báturinn Sindri GK væri að sökkva í Sandgerðishöfn í gærkvöldi. Tókst þeim að dæla sjó úr bátnum og koma þannig í veg fyrir að báturinn sykki.

Grétar Sigurbjörnsson, verkefnisstjóri Sandgerðishafnar, segir að hann hafi sjálfur óskað eftir aðstoð slökkviliðs þegar hann varð þess var að báturinn Sindri GK væri að sökkva við Norðurgarð hafnarinnar.

„Ég kom að honum og hafði samband við slökkvilið. Það var mikið um að vera hérna í höfninni milli tíu og ellefu í gærkvöldi. En það náðist að dæla upp úr honum áður en hann sökk, sem betur fer,“ segir Grétar í samtali við fréttastofu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×