Handbolti

Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum

Atli Arason skrifar
Teitur Örn í landsleik gegn Tyrklandi.
Teitur Örn í landsleik gegn Tyrklandi. Andri Marinó Karlsson

Teitur Örn Einarsson og félagar í Flensburg höfðu betur gegn Alexander Petersson og Arnari Frey Arnarssyni í Melsungen í þýska handboltanum í dag, 26-32.

Teitur Örn Einarsson var markahæstur Íslendinga í leiknum en hann skoraði 5 mörk úr 11 tilraunum. Arnar Freyr Arnarsson gerði 4 mörk úr 6 tilraunum á meðan að Alexander Petersson tókst ekki að skora úr einu marktilraun sinni í leiknum.

Flensburg heldur þriðja sæti deildarinnar og er nú komið upp í 37 stig, jafn mikið og Fuchse Berlin og 7 stigum á eftir toppliði Magdeburg. Melsungen er með 27 stig í sjötta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×