Fótbolti

Pisa missir toppsætið

Atli Arason skrifar
Hjörtur Hermannsson á landsliðsæfingu
Hjörtur Hermannsson á landsliðsæfingu Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Hjörtur Hermannsson og félagar í Pisa misstigu sig rækilega í toppbaráttu ítölsku B deildarinnar í fótbolta. Pisa var í heimsókn hjá Ascoli þar sem heimamenn unnu 2-0 sigur.

Hjörtur var í byrjunarliði Pisa en honum var skipt af leikvelli á 56. mínútu leiksins en Federico Dionisi gerði bæði mörk Ascoli á fjögurra mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks.

Pisa, sem var í toppsæti deildarinnar áður en umferðin hófst, fellur niður í þriðja sæti deildarinnar eftir tapið þar sem Cremonese vann sinn leik sem fór fram á sama tíma. Ascoli klifrar upp í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×