Körfubolti

Ármann tryggði sér deildarmeistaratitilinn með stórsigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ármann tryggði sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í kvöld,
Ármann tryggði sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í kvöld, Karfan.is

Ármann er deildarmeistari í 1. deild kvenna eftir öruggan 34 stiga sigur gegn botnliði Vestra í kvöld, 80-46.

Yfirburðir Ármanns voru miklir strax frá fyrstu mínútu, en liðið hafði tíu stiga forskot að fyrsta leikhluta loknum. Ármann jók forystu sína umtalsvert fyrir hálfleikshléið, en staðan var 38-18 þegar gengið var til búningsherbergja.

Heimakonur gerðu svo endanlega út um leikinn í þriðja leikhluta þar sem þær skoruðu 28 stig gegn aðeins átta stigum Vestra. Leikmenn Ármanns gátu því leyft sér að slaka aðeins á í lokaleikhlutanum, en lokatölur urðu sem fyrr segir 80-46.

Schekinah Sandja Bimpa átti flottan leik í liði Ármanns og skoraði 26 stig, ásamt því að taka 15 fráköst og gefa fjórar stoðsendingar. Í liði Vestra var Sara Emily Newman atkvæðamest með 12 stig.

Þrátt fyrir að liðið sé búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn er sæti í efstu deild ekki í höfn. Ármann mætir liðinu sem hafnar í fjórða sæti deildarinnar í úrslitakeppni um sæti í Subway-deild kvenna á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×