Sanchez bjargaði stigi fyrir Inter í uppbótartíma

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Alexis Sanchez í leiknum í kvöld.
Alexis Sanchez í leiknum í kvöld. vísir/Getty

Ítalíumeistarar Inter Milan náðu ekki að hrista af sér vonbrigði vikunnar í Meistaradeildinni þegar liðið heimsótti Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Inter vann góðan sigur á Anfield í miðri viku en það dugði þó ekki til að komast áfram þar sem Liverpool hafði unnið fyrri leik liðanna 0-2.

Liverpool leikurinn virtist enn sitja í Inter liðinu í kvöld því strax á tólftu mínútu náðu heimamenn forystunni með marki brasilíska varnarmannsins Bremer. 

Torino tókst að standast allar sóknarlotur Inter manna í leiknum allt þar til á síðustu mínútu uppbótartíma þegar varamaðurinn Alexis Sanchez skoraði eftir stórkostlega stoðsendingu Edin Dzeko. Lokatölur 1-1.

Inter situr í 3.sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði AC Milan en Inter á þó einn leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira