Enski boltinn

Á von á svefnlausum nóttum eftir erfiða byrjun í nýju starfi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jesse Marsch hefur ekki fengið neina draumabyrjun í starfi knattspyrnustjóra Leeds United.
Jesse Marsch hefur ekki fengið neina draumabyrjun í starfi knattspyrnustjóra Leeds United. getty/George Wood

Jesse Marsch, knattspyrnustjóri Leeds United, á ekki von á því að sofa mikið á næstunni eftir slaka byrjun liðsins undir hans stjórn.

Leeds tapaði 0-3 fyrir Aston Villa á Elland Road í ensku úrvalsdeildinni í gær. Liðið hefur tapað báðum leikjum sínum undir stjórn Marschs án þess að skora mark. Bandaríkjamaðurinn tók við Leeds af Marcelo Bielsa í síðustu viku.

Þrátt fyrir erfiða byrjun er Marsch hvergi banginn og ætlar að leggja líf og sál í að halda Leeds í ensku úrvalsdeildinni.

„Eina sem ég get lofað ykkur er að ég hræðist ekki verkefnið. Stundum finnst mér gott að vera með bakið upp við vegg. Að mínu mati snýst þessi bransi ekki um hversu góður þú ert þegar allt gengur vel heldur hversu góður þú ert þegar staðan er mjög erfið,“ sagði Marsch á blaðamannafundi eftir leikinn í gær.

„Staðan er klárlega erfið. Svo ég sef ekki mikið í nótt. Ég lofa ykkur því. En ég fer gaumgæfilega yfir þetta og geri allt til að liðið komi aftur til baka svo við getum sýnt mun betri frammistöðu á sunnudaginn og hún mun frekar sýna hverjir við erum.“

Leeds tekur á móti Norwich City í afar mikilvægum leik í botnbaráttunni á sunnudaginn. Leeds er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 23 stig, tveimur stigum frá fallsæti. Everton og Burnley, liðin í 17. og 18. sæti, eiga bæði leiki til góða á Leeds.

Marsch segir að leikmenn Leeds megi ekki óttast að spila á heimavelli, fyrir ástríðufulla stuðningsmenn liðsins.

„Ég hafði heyrt mikið um stuðninginn á Elland Road og hann var stórkostlegur allt frá upphafsflautinu. En þú sást líka að leikmennirnir vildu gera svo vel, fyrir hvorn annan, félagið og stuðningsmennina, að það jók pressuna á þá,“ sagði Marsch.

„Svo við þurfum að vera rólegir og standa við það. Og vita þegar við stígum inn á völlinn að ótti leiðir af sér mistök. Hann forðar okkur ekki frá þeim. Við verðum að vera óttalausir. Við þurfum að sækja og fara á eftir andstæðingnum. Það er stærsta lexían frá þessum leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×