Enski boltinn

Hittir strákana sem beittu hann kynþáttaníði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Colin Kazim-Richards varð fyrir kynþáttaníði á síðasta ári.
Colin Kazim-Richards varð fyrir kynþáttaníði á síðasta ári. getty/James Williamson

Colin Kazim-Richards, leikmaður Derby County, ætlar að hitta unglingsstrákana sem beittu hann kynþáttaníði eftir leik gegn Nottingham Forest á síðasta tímabili.

Kazim-Richards varð fyrir kynþáttaníði á Instagram eftir 1-1 jafntefli Derby og Forest í ensku B-deildinni í febrúar á síðasta ári. Lögreglan í Derbyskíri rannsakaði málið og fann sökudólgana, þrjá drengi á aldrinum 12-14 ára. Þeir játuðu sök.

Strákunum verður ekki refsað heldur verður mál þeirra leyst með svokallaðri uppbyggilegri réttvísi. Fyrirtæki sem sérhæfir sig í því hefur verið fengið til að annast mál drengjanna.

Fyrirtækið ætlar meðal annars að koma á fundi milli Kazim-Richards og drengjanna sem sendu honum rasísk skilaboð fyrir ári síðan.

Kazim-Richards er fæddur og uppalinn á Englandi en er með tyrkneskan ríkisborgararétt og spilaði 37 leiki fyrir tyrkneska landsliðið á árunum 2007-15.

Hinn 35 ára Kazim-Richards hefur leikið með Derby frá 2020. Liðið er í harðri baráttu um að halda sæti sínu í B-deildinni þrátt fyrir að 21 stig hafi verið dregin af því vegna fjárhagsvandræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×