Sport

Dagskráin í dag: Subwaydeildin, Lengjubikarinn, golf og fleira

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Keflavík og KR eigast við í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld.
Keflavík og KR eigast við í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Vísir/Bára Dröfn

Það verður eitthvað fyrir alla í boði á sportrásum Stöðvar 2 í dag, en alls eru níu beinar útsendingar úr hiinum ýmsu íþróttum á dagskrá.

Stöð 2 Sport

Einn leikur er á dagskrá í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, en það er viðureign Keflavíkur og KR klukkan 20:00. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið þar sem KR-ingar eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni á meðan Keflvíkingar mega ekki við því að falla enn lengra aftur úr toppliðunum og niður í þettan pakkann sem berst um heimaleikjarétt.

Að leik loknum er svo Subway Körfuboltakvöld á dagskrá þar sem farið verður yfir allt það helsta úr liðinni umferð.

Stöð 2 Sport 2

Boðið verður upp á einn föstudagsleik í ensku 1. deildinni í fótbolta á Stöð 2 Sport 2 þegar West Bromwich Albion tekur á móti Huddersfield klukkan 19:55.

Stöð 2 Sport 4

Lengjubikarinn heldur áfram á Stöð 2 Sport 4, en klukkan 16:55 taka Íslandsmeistarar Víkings á móti ÍBV í Lengjubikar karla.

Að þeim leik loknum færum við okkur svo yfir í Árbæinn þar sem Fylkiskonur taka á móti Aftureldingu í Lengjubikar kvenna.

Stöð 2 Golf

Risamótið The Players Championship á PGA-mótaröðinni heldur áfram frá klukkan 17:00.

Klukkan 03:30 eftir miðnætti hefst svo bein útsending frá Honda LPGA Thailand á LPGA-mótaröðinni.

Stöð 2 eSport

Klukkan 15:50 hefst bein útsending frá landsleik í eFótbolta og klukkan 21:00 heldur Ljósleiðaradeildin í CS:GO sínu striki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×