Lífið

Sigrún Ósk á rúntinum með Jóni Jónssyni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það var mikið fjör hjá Sigrúnu og Jóni á rúntinum en þau litu við í Söngvakeppnishöllinni á Gufunesinu.
Það var mikið fjör hjá Sigrúnu og Jóni á rúntinum en þau litu við í Söngvakeppnishöllinni á Gufunesinu.

Það styttist ekki bara í vorið og afnám hafta heldur líka Eurovision stemningu með öllu sem henni fylgir.

Sigrún Ósk heimsótti Jón Jónsson á hljómsveitaræfingu og fékk að fara með honum á rúntinn, en í viðbót við hefðbundið tónlistarstúss er að ýmsu að huga hjá honum í undirbúningi fyrir undankeppnina sem hefst á laugardag, en þar er hann kynnir í Söngvakeppninni.

Á rúntinum ræðir Jón um tónleika sem hann stendur fyrir 18. mars í Bæjarbíói.

„Ég er aðeins að svindla á liðinu, ég skulda tónleika í Hörpunni sem ég setti í sölu fyrir tveimur árum en þeir eru í maí. Þetta er fyrir sanna JJ aðdáendur,“ segir Jón og hlær.

„Ég hef ekkert alltaf verið klár með snakkið og glimmerjakkann þegar kemur að Eurovision en Ragnhildur Steinunn dró mig inn í þetta fyrir fjórum árum og ég ætlaði ekkert að vera með. Það voru tveir dagar í fyrstu keppnina og þá stoppaði hún mig á ganginum á RÚV og spurði mig hvort ég vildi vera með. Hún var þarna búin að vinna alla vinnuna og ég var bara að lesa einhvern texta á skjá,“ segir Jón.

Jón segir að hann hafi reglulega verið beðinn um að flytja lag í forkeppninni hér á landi sjálfur.

„Það hefur aldrei verið þannig að ég hafi hugsað að þetta væri málið. Ég sagði um daginn að það væri kannski fallegt að ég og Frikki myndum fara í þetta sem einhverjir Olsen bræður, bara seinna.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×