Sport

Lovísa: Stígandi í liðinu eftir erfiða byrjun á árinu

Andri Már Eggertsson skrifar
Lovísa Thompson gerði sex mörk í kvöld
Lovísa Thompson gerði sex mörk í kvöld Vísir/Hulda Margrét

Valur tryggði sér farseðilinn í undanúrslit með tveggja marka sigri á Haukum 26-24. Lovísa Thompson, leikmaður Vals, var afar glöð eftir leikinn.

„Við náðum góðum kafla í fyrri hálfleik sem lagði grunninn að sigrinum. Þá gerðum vel í að halda þeirra bestu leikmönnum í skefjum,“ sagði Lovísa Thompson í samtali við Vísi eftir leik.

Valskonur byrjuðu leikinn hikandi en um miðjan fyrri hálfleik gerðu heimakonur sex mörk í röð sem Lovísa var afar ánægð með.

„Við þéttum vörnina og Sara [Sif Helgadóttir] varði vel í markinu sem skilaði okkur auðveldum mörkum.“

Lokamínúturnar voru nokkuð spennandi þar sem Haukar gerðu vel í að saxa á forskot Vals og fannst Lovísu liðið slaka of mikið á.

„Mér fannst við slaka of mikið á og þá gerist þetta því Haukar er gott lið sem gefst aldrei upp.“

Lovísa var ánægð með stígandann í liðinu eftir slaka byrjun Vals á árinu.

„Við erum að stíga upp eftir frekar slaka byrjun á árinu. Við erum að bæta okkur á hverri  æfingu og í hverjum leik,“ sagði Lovísa sem vonar að Valur toppi á réttum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×