Fótbolti

Fjórir leikir í röð án sigurs hjá Elíasi og félögum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland hafa ekki unnið í seinustu fjórum deildarleikjum.
Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland hafa ekki unnið í seinustu fjórum deildarleikjum. Getty/Jose Manuel Alvarez

Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland þurftu að sætta sig við enn eitt tapið er liðið tók á móti Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur urðu 0-2, en Elías og félagar sitja enn á toppnum.

Daniel Fredrik Granli kom gestunum yfir eftir tæplega hálftíma leik áður en Kasper Hogh tryggði 0-2 sigur snemma í síðari hálfleik.

Elíar Rafn stóð vaktina í marki Midtjylland, en þetta var fjórði deildarleikur liðsins í röð án sigurs. Liðið hefur nú tapað þrem af seinustu fjórum og gert eitt jafntefli.

Þrátt fyrir slæmt gengi undanfarið trónir Midtjylland enn á toppi dösnku deildarinnar. Liðið er með 35 stig eftir 18 leiki, fjórum stigum meira en Álaborg sem situr í þriðja sæti. Forskot Midtjylland á toppnum er komið niður í tvö stig, en Íslendingaliðið FCK á leik til góða og getur hrifsað toppsætið til sín með sigri gegn Odense síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×