Innlent

Ró­legt veður víðast hvar en líkur á ofan­komu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Það er vetrarlegt víðast hvar á landinu.
Það er vetrarlegt víðast hvar á landinu. Vísir/Vilhelm.

Reikna má með að veðrið verði með rólegra móti í dag og á morgun, þó víða megi gera ráð fyrir ofankomu.

Að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands er líklegra að ofankoman verði heldur meiri á norðausturhorni landsins en á öðrum landshlutum, ekki síst suðausturlandi þar sem verður nánast alveg þurrt.

Frost verður um mest allt land en reikna má með að hiti skríði yfir frostmark næst ströndinni. Þá vekur veðurfræðingur athygli á því að þar sem sólin er farin að hækka megi reikna með svolítilli dægursveiflu, sem aukist allhratt á næstu vikum.

Veðurhorfur á landinu

Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og víða dálítil ofankoma, síst SA-til. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust austast. Styttir upp að mestu á S- og V-landi seint í dag og kólnar í veðri.

Svipað veður á morgun, frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins og líkur á éljum SV-til annað kvöld.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:

Norðaustlæg átt, 3-10 m/s og líkur á dálitlum éljum, einkum við ströndina. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á laugardag:

Hægt vaxandi austanátt, 15-23 m/s á sunnanverðu landinu undir kvöld og snjókoma með köflum eða skafrenningur, hvassast með S-ströndinni. Mun hægari og úrkomulaust að kalla fyrir norðan. Hiti frá frostmarki syðst, niður í 10 stiga frost í innsveitum nyrðra.

Á sunnudag:

Norðaustan hvassviðri og éljagangur, en slydda eða rigning syðst. Dregur úr vindi og seinnipartinn og léttir til S- og V-lands. Mun hægari norðanátt og dálítil él um kvöldið. Frost 1 til 7 stig.

Á mánudag:

Útlit fyrir vaxandi austanátt og slyddu eða jafnvel rigningu með kvöldinu og hlánar, fyrst sunnantil.

Á þriðjudag:

Austanátt og rigning eða slydda, en suðvestanátt og kólnar með éljum seinnipartinn, fyrst SV-til.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir norðlæga átt með snjókomu fyrir norðan, en mun hægari breytileg átt og úrkomulítið syðra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×