Fótbolti

Þriðji sigur Newcastle í röð

Atli Arason skrifar
Eddie Howe virðist ætla að snúa gengi Newcastle við.
Eddie Howe virðist ætla að snúa gengi Newcastle við. EPA-EFE/PETER POWELL

Newcastle, Liverpool og Wolves unnu öll sína leiki í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Newcastle vann sinn þriðja sigur í röð í deildinni, í þetta skipti gegn Aston Villa. Lokatölur á St. James Park voru 1-0. Kieran Trippier skoraði annan leikinn í röð úr aukaspyrnu til að tryggja þeim svart hvítu stiginn þrjú. VAR hjálpaði Newcastle aðeins þar sem að mark Ollie Watkins á 61. mínútu var dæmt af eftir afar tæpa rangstöðu.

Með sigrinum er Newcastle komið með 21 stig, fjórum stigum frá fallsvæðinu. Allir fjórir sigrar Newcastle í vetur hafa komið undir stjórn Eddie Howe.

Sadio Mane og Mohamed Salah eru mættir aftur. Getty Images

Sadio Mane og Mohamed Salah sneru aftur í byrjunarlið Liverpool í 0-1 sigri á Burnley á Turf Moor í dag. Eina mark leiksins kom á 40. mínútu þegar Trent Alexander-Arnold tók hornspyrnu sem Mane fleytti áfram á Fabinho sem skoraði auðveldlega og þar við sat. Liverpool stjórnaði leiknum frá upphafi til enda en mörkin urðu ekki fleiri. Liverpool fer með sigrinum upp í 54 stig, níu stigum á eftir toppliði Manchester City.

Raul Jimenez skoraði eitt í dag.Getty Images

Þriðji leikur dagsins sem hófst klukkan 14:00 var viðureign Tottenham og Wolves. Gestirnir frá Wolverhampton fóru með 0-2 sigur af hólmi. Bæði mörkin komu á fyrstu 20 mínútunum og voru frekar lík þar sem leikmenn Wolves voru töluvert grimmari að ná frákastinu. Fyrst var það Raul Jimenez sem þrumaði boltanum í netið á 6. mínútu eftir að Hugo Lloris tókst ekki að halda boltanum og 12 mínútum síðar er það Leander Dendoncker sem tvöfaldar forystuna eftir að boltinn skoppar á stöngina og svo á milli varnarmanna Tottenham áður en að Dendoncker er fyrstur að átta sig og kemur knettinum í netið, lokatölur 0-2.

Newcastle 1-0 Aston Villa
Burnley 0-1 Liverpool
Tottenham 0-2 Wolves



Fleiri fréttir

Sjá meira


×