Lífið

Team Cube fyrsta liðið í mark í Síminn Cyclothon

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Team Cube
Team Cube Síminn Cyclothon

Team Cube var fyrsta liðið í mark í Síminn Cyclothon hjólreiðakeppninni. kl. 08:02 á tímanum 37:02:29.  Team Ljósið voru aðrir í mark kl. 09:34 á tímanum 38:34:39.

Endamark Síminn Cyclothon er við Hamranesvöll við Hvaleyrarvatnsveg. Aðgengi áhorfenda er frá Hvaleyrarvatni þar sem Hvaleyrarvatnsvegur verður lokaður fyrir almenna umferð frá Krýsuvíkurvegi. 

Hægt er að fylgjast með stöðunni í rauntíma hér: https://static.siminn.is/cyclothon/index.html

Team Cube

Team Cube er á vegum TRI verslunar. Liðsmenn liðsins eru Guðmundur Sveinsson, Bjarni Garðar Nicolaisson, Fannar Gíslason, Arnþór Gústavsson, Sigurður Örn Ragnarsson, Magnús Björnsson, Luis Neff og Sven Strähle

Á hverju ári er valið verðugt málefni til að styrkja og árið 2021 safnar hópurinn fyrir Landvernd. Keppendur og keppnislið leggja sitt af mörkum í söfnun áheita sem renna óskipt til málefnisins. Tugir milljóna hafa nú þegar safnast fyrir málefni eins og Bugl, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Meðferðarstöðvar á Kleppi, Landsspítalann og Barnaheill.

Team Ljósið

Margir af fremstu hjólagörpum Íslands tóku þátt í Síminn Cyclothon 2021 fyrir hönd Ljóssins endurhæfingarmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda. Markmið Ljóssins með þátttöku í Síminn Cyclothon 2021 var að varpa ljósi á endurhæfingu krabbameinsgreindra og þá staðreynd að ungir karlmenn eru líklegri en aðrir hópar til að sleppa endurhæfingu þegar þeir greinast með krabbamein.

Liðið skipa Ingvar Ómarsson, Jón Ingi Sveinbjörnsson, Auðunn Gunnar Eiríksson, Þorsteinn Hallgrímsson, Hafsteinn Ægir Geirsson, Páll Elís, Hákon Hrafn Sigurðsson og Kristinn Jónsson.

Team Ljósið.Síminn Cyclothon

„Ég held að þetta sé mjög þörf áminning til okkar karlanna sem erum oft meira innávið í öllum svona málum. Gamaldags karlmennskan þar sem allt er tekið á kassan og ekki talað um vandamálin er eitthvað sem við þurfum að útrýma, og ég er mjög stoltur af að því að fá að setja mitt nafn við það“ sagði Þorsteinn Hallgrímsson um þátttöku þeirra í keppninni. 


Tengdar fréttir

Hjólaði þvert yfir Ísland og hljóp Laugaveginn daginn eftir

Ljósmyndarinn og ævintýramaðurinn Chris Burkard hefur komið í 43 heimsóknir til Íslands á síðustu 15 árum. Hann leitar stöðugt að nýjum ástæðum til að koma til landsins og lætur sig dreyma um að eignast hús hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×