Fótbolti

„Orðnir þreyttir eftir að taka hliðar saman hliðar allan fyrri hálf­leik“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kári Árnason [t.v.] og Sverrir Ingi Ingason [t.h.] voru miðverðir Íslands í kvöld.
Kári Árnason [t.v.] og Sverrir Ingi Ingason [t.h.] voru miðverðir Íslands í kvöld. EPA-EFE/Friedemann Vogel

Kári Árnason, miðvörður íslenska landsliðsins, var hreinskilinn í viðtali við RÚV eftir 3-0 tap Íslands gegn Þýskalandi í undankeppni HM í kvöld. Fyrri hálfleikurinn kostaði íslenska liðið og fyrstu mínútur leiksins voru ekki boðlegar af hálfu íslenska liðsins.

„Það er erfitt að segja. Við byrjuðum þetta mjög illa. Vorum ekki með nein ráð við sóknarleik þeirra, þeir fundu endalaust svæði á milli og hótuðu stanslaust inn fyrir. Þetta var bara mjög erfitt. Þetta varð betra í seinni hálfleik. Við náðum aðeins að klukka þá og vorum meira maður á mann en þetta var engu að síður heljarinnar vakt,“ sagði Kári um leik kvöldsins.

„Við vissum svo sem svæðin sem þeir myndu reyna að fylla í, við vorum bara ekki nægilega aggressífir. Ætluðum að bíða eftir þeim frekar en að drepa þessa fyrstu sókn þeirra, fá dæmda á okkur aukaspyrnu og drepa tempóið hjá þeim. Þeir skora eftir upphafsspyrnuna og það er ekki boðlegt,“ sagði miðvörðurinn reynslumikli um hörmungar byrjun íslenska liðsins.

„Seinni hálfleikurinn var fínn en það er mjög erfitt að skapa sér færi gegn svona liði. Við vorum líka orðnir frekar þreyttir eftir að taka hliðar saman hliðar allan fyrri hálfleikinn. Það var því erfitt að vinna svæðí seinni hálfleik, vorum að stóla á að menn myndu sóla sig í einhvern sendingarséns. Þurfum að skoða sóknarhliðina á þessu og finna betri svæði en það eru svo sem fá lið eins og Þýskaland.“

„Við verðum að þora, um það snýst þetta. Við sýndum þeim full mikla virðingu í fyrri hálfleik. Þeir eru bara manneskjur eins og við. Ef þeir fá alvöru pressu á sig þá verða þeir stressaðir líka svo ef við erum að pressa verðum við að gera það almennilega,“ sagði Kári Árnason að endingu við RÚV um síðari hálfleikinn gegn Þýskaland sem var töluvert betri en sá fyrri.

Ísland mætir Armeníu á sunnudaginn í næsta leik undankeppninnar.


Tengdar fréttir

„Eitt­hvað best spilandi lið sem ég hef spilað á móti í góðan tíma“

„Mér fannst við vinna okkur betur inn í leikinn. Síðari hálfleikurinn var betri og þeir eru góðir að halda boltanum og erfitt að fá á okkur tvö mörk með stuttu millibili í byrjun. Það tók smá vindinn úr okkur,“ sagði Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands í samtali við RÚV eftir 3-0 tapið gegn Þýskalandi í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×