Fótbolti

AC Milan lagði Fiorentina í fimm marka leik

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Að sjálfsögðu á skotskónum.
Að sjálfsögðu á skotskónum. vísir/getty

Það var boðið upp á markaveislu í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar Fiorentina tók á móti AC Milan.

Zlatan Ibrahimovic sneri aftur í byrjunarlið AC Milan eftir meiðsli og hann sá um að koma sínu liði á bragðið þegar hann skoraði eftir stoðsendingu Simon Kjær á 9.mínútu.

Erick Pulgar var fljótur að svara fyrir heimamenn og fóru liðin með jafna stöðu í leikhléið.

Síðari hálfleikur var mikil skemmtun þar sem Franck Ribery kom Fiorentina í forystu á 51.mínútu. AC Milan voru fljótir að svara því Brahim Diaz jafnaði metin á 57.mínútu, eftir stoðsendingu Simon Kjær.

Tyrkneski miðjumaðurinn Hakan Calhanoglu gerði svo síðasta mark leiksins á 72.mínútu og tryggði AC Milan sætan sigur, 2-3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×