Innlent

Lögreglan leitar að kofaeiganda

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kofinn hefur farið ansi illa við það að falla af kerrunni eða pallinum.
Kofinn hefur farið ansi illa við það að falla af kerrunni eða pallinum. Lögreglan

Um klukkan hálftíu í gærkvöldi fannst brotinn kofi á Suðurstrandarvegi, rétt vestan við Hlíðarvatn.

Lögreglan á Suðurlandi birtir mynd af kofanum á Facebook-síðu sinni og segir í færslu að líklega hafi kofinn verið í betra ástandi skömmu áður, á palli eða kerru.

Lögreglan leitar að eiganda kofans og biður þann sem kannast við að hafa tapað kofanum eða hefur vitneskju um hver á kofann um að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi, annað hvort á Facebook eða í síma 444-2000.

Um kl. 21:30 í gær fannst brotinn kofi á Suðurstrandarvegi, rétt vestan við Hlíðarvatn. Líklega hefur kofinn verið í...

Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Monday, February 8, 2021


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×