Fótbolti

Willum í byrjunarliði BATE er hvítrússneska deildin heldur áfram

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Willum Þór í leik með Breiðablik áður en hann hélt til Hvíta-Rússlands.
Willum Þór í leik með Breiðablik áður en hann hélt til Hvíta-Rússlands. Vísir/Bára

Willum Þór Willumsson lék 86. mínútur er BATE Borisov gerði markalaust jafntefli við Torpedo Zhodino í hvítrússnesku úrvalsdeildinni.

Hvíta-Rússland er eina landið sem heldur íþróttaviðburði eins og hefur komið reglulega fram undanfarnar vikur.

Alls fóru fjórir leikir fram í 5. umferð deildarinnar í dag. Willum Þór og félagar í BATE fengu Torpedo Zhodino í heimsókn í dag. Hvorugu liðinu tókst að finna netmöskvana og lokatölur því 0-0.

Bate er sem stendur í 7. sæti, af 16 liðum, með sjö stig á meðan Torpedo er í 2. sæti með 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×