Ronaldo hetja Juventus í Genoa

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. vísir/Getty

Juventus gerði vel í að innbyrða útisigur þegar liðið heimsótti Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Fyrri hálfleikur var markalaus en Paulo Dybala kom Juventus í forystu á 57.mínútu. Stefano Sturaro, fyrrum leikmaður Juventus, var fljótur að svara fyrir heimamenn.

Portúgalski markahrókurinn Cristiano Ronaldo sá til þess að Juventus færi með öll þrjú stigin heim þegar hann skoraði tvö mörk á síðustu tíu mínútunum, bæði úr vítaspyrnu.

Juventus í 4.sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira