Matur

Svona grillar maður smjörhjúpað hreindýr

Stefán Árni Pálsson skrifar
BBQ-kóngurinn kann þetta alveg upp á tíu.
BBQ-kóngurinn kann þetta alveg upp á tíu.

Grindvíkingurinn Alfreð Fannar Björnsson er án efa mesti dellumaður landsins, tekur allt með trompi hvort sem það snýr að veiðinni, bílasprautun eða öðru.

Og er nýjasta æðið hans að grilla. Og þá þýðir ekkert að eiga eitt grill, heldur á Alfreð sex grill en Alfreð verður með tvo sérstaka jólagrillþætti á Stöð 2 í aðdraganda jólanna.

Fyrsti þátturinn var í vikunni og fór BBQ kóngurinn sjálfur um víðan völl. Þar fór Alfreð meðal annars yfir það hvernig maður grillar smjörhjúpað hreindýr.

Smjörhjúpað hreindýr með karmelíseruðum kanil perum, gráðostafylltum portobello sveppum og kryddsmjörs kartöflu.

Klippa: Svona grillar maður smjörhjúpað hreindýr

Smjörhjúpað hreindýr:

1. Hitið grillið í 120 gráður

2. Setjið Hreindýrið á steikarstand og bakka undir svo smjörið dropi ofan í bakkann

3. Ausið bráðnuðu smjörinu reglulega yfir kjötið á meðan eldun stendur

4. Náið upp 49 gráðum í kjarnhita

5. Kyndið grillið í botn og brúnið kjötið í 10 sekúndur á öllum hliðum

6. Leifið kjötinu að hvíla í 10 mínútur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×