Sport

Dag­skráin í dag: Domino's Körfu­bolta­kvöld, spænskur fót­bolti og körfu­bolti

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hver veit nema jólatréið verði komið upp í þætti kvöldsins?
Hver veit nema jólatréið verði komið upp í þætti kvöldsins? Stöð 2 Sport skjáskot

Sjö beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports og hliðarrása í dag. Þar er hægt að finna golf, spænskan körfubolta, ítalskan og spænskan fótbolta sem og Domino's Körfuboltakvöld.

Fyrsta útsending dagsins á sportrásunum er klukkan 07.00 en þá hefst DP World Tour meistaramótið. Klukkan 16.00 er það svo QBE Shootout á PGA-túrnum.

Það er Íslendingaslagur í spænska körfuboltanum í dag er Morabanc Andorra og Casademont Zaragoza mætast. Haukur Helgi Pálsson gegn Tryggva Snæ Hlinasini.

Sassuolo og Beneveno mætast í ítalska boltanum sem og Real Valladolid og Osasuna í spænska boltanum. Us Womens Open 2020, síðasta stórmót ársins, er svo á dagskrá klukkan 20.00.

Einig klukkan 20.00 er Domino's Körfuboltakvöld sem heldur áfram að fara yfir stöðuna í körfuboltanum þrátt fyrir að ekki megi spila á Íslandi.

Allar útsendingar dagsins sem og næstu daga má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×