Sport

Hinir nafnlausu fyrstir til að bræða stálið á tímabilinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alex Smith hefur átt ótrúlega endurkomu í NFL-deildina eftir svakalegt fótbrot í leik í deildinni.
Alex Smith hefur átt ótrúlega endurkomu í NFL-deildina eftir svakalegt fótbrot í leik í deildinni. AP/Barry Reeger)

Pittsburgh Steelers tapaði fyrsta leiknum sínum á tímabilinu í NFL-deildinni í nótt en liðið var eina ósigraða lið deildarinnar fyrir leikinn.

Pittsburgh Steelers liðið var búið að vinna ellefu fyrstu leiki sína í NFL-deildinni á tímabilinu þegar liðið tapaði 23-17 á heimavelli á móti Washington Football Team í gær.

Pittsburgh Steelers komst í 14-0 í leiknum undir lok fyrri hálfleiks og var því í mjög góðum málum að landa tólfta sigrinum í röð.

Þetta var aðeins í annað skiptið frá árinu 2004, eða þegar félagið fékk til sín leikstjórnandann Ben Roethlisberger, að Steelers liðið missti niður fjórtán stiga forystu í leik.

Steelers var 17-10 yfir þegar fjórar mínútur voru eftir að leiknum en Washington vann lokamínúturnar 13-0 og síðustu sex stigin fóru á töfluna eftir tvö vallarmörk frá Dustin Hopkins.

Ein besta sagan í NFL-deildinni á þessu tímabili er endurkoma leikstjórnandans Alex Smith eftir hrikalegt fótbrot sem ógnaði um tíma lífi hans. Alex Smith sýndi mikla þrautseigju með að koma til baka inn í NFL deildina.

Smith tapaði fyrsta leiknum í byrjunarliðinu en hefur síðan leitt Washington liðið til sigurs í þremur leikjum í röð þar af á heimavöllum stórveldanna Dallas Cowboys og Pittsburgh Steelers í síðustu tveimur leikjum.

Buffalo Bills er í góðum málum í Austurriðli Ameríkudeildarinnar eftir 34-24 sigur á San Francisco 49ers en 49ers á nú litla möguleika á því að komast í úrslitakeppnina. Josh Allen átti góðan leik í leikstjórnandanum hjá Bills og gaf fjórar snertimarkssendingar í leiknum.

San Francisco 49ers gat ekki spilað á heimavelli sínum vegna sóttvarnarreglna og þurfti því að spila þennan leik í Glendale í Arizona.

Í kvöld byrjar nýr íslenskur þáttur um NFL-deildina á sportinu sem hefur fengið nafnið Lokasóknin.

Henry Birgir Gunnarsson mun þar fá góðan gest í heimsókn og fara yfir leiki helgarinnar í NFL-deildinni. Farið verður yfir allt það helsta sem gerðist í deildinni síðustu daga.

Þátturinn er á Stöð 2 Sport 2 og hefst klukkan 18.55.


NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem viðbót við Sportpakkann á 2.000 krónur á mánuði.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×